FREE PORN!

03.04.2008 01:08:59 / aron84

Caruso

Ég sit hérna fyrir framan tölvuna seint á miðvikudagskvöldi með í vörinni og er að hlusta á Caruso með Julio Iglesias. Er búinn að þamba líter af vatni enda var ég í fótbolta fyrr í kvöld. Ég skoraði. Sem að minnir mig á að ég skoraði með skalla frá eigin vítateig á mánudaginn, það var flott hjá mér.

Nú er orðið heldur betur langt síðan ég ritaði niður hugsanir mínar. Ég hugsa bara svo mikið að ég nenni aldrei að skrifa það niður.

Kannast einhver hérna við tilfinninguna að vera kannski í vinnunni eða í skólanum, kannski lítið að gera og þá fer maður að hugsa um eitthvað sem manni finnst geðveikt merkilegt en það er enginn nálægt sem maður getur deilt þessum merkilegu hugsunum? Þá hugsar maður stundum, "Fokk, ég verð að blogga um þetta... Verður sækó töff." Svo steingleymir maður þessu eftir fimm mínútur og veit svo aldrei hvað maður á að skrifa um þegar manni loksins langar til að blogga. Alveg súrt sko.

Endemis? Er það ekki eitthvað orð? "Þetta er nú alveg endemis vitlaust"? Kannski er ég að rugla eitthvað...

Núna er komið lag með Deftones á fóninn. Þá verður maður nú að skipta yfir í þunglynda gírinn. Ohh, hvað lífið sýgur maður. Hvað kostar svona síður leddari? Verð að kaupa mér þannig og setja á mig varalit til að sýna öllum hvað ég er reiður út í heiminn. 


Image and video hosting by TinyPic

Þess má þó geta að Deftones lagið var löngu búið þegar ég kláraði að gera þessa mynd þannig að ég er í góðum málum, búinn að klippa mig og alles...
simon young skrifaði
hehe ú á heiminn maður.....! en ég held að orðið sem þú ert að leita að sé "eindæmis" eins og "þetta er nú meiri eindæmis vitleysan" samt ekki viss en samt frekar töff
Þröstur skrifaði
hehe þú ert megatöff með sítt hár og í leðurjakka:)
Einar Þór skrifaði
LOL, snild
Óttar skrifaði
Djöfull ertu góður í photoshop maður, verður að taka mig á námskeið..
Einar Örn skrifaði
haha.. þetta er eina vitið að blogga bara eins og það kemur útúr kúnni skilru,, ekkert helvítis plan. Bilaður og skemmtilegur djöfull. koss og knæus
Birgitta skrifaði
Þetta ert svo þú... ú á heiminn
;)
lv news skrifaði
Hæ,hæ. þið eruð bara frábærar...... Gangi ykkur vel og Guð veri með ykkur. þórey Reykholti.

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.