Jú, það er rétt.... það er föstudagur í dag.
Ég hef ekki haft undan síðustu daga við að svara
fyrirspurnum í bílinn og þetta virðist allt vera komið á
rétta leið, ég er að gæla við að taka 80 kall fyrir kerruna en það
myndi duga mér fyrir kaffi í MK og þá ætti ég 10 í afgang. Við
erum að vinna frændurnir, ég, Elmi 0g Þrusu-Þrössi.
Heyrst hefur...
...að Þrusu-Þrössi sé búinn að vera kvefaður í 3. mánuði en er
samt að hugsa um að skella sér í teiti í Keflavík
...að Atli sé jafnvel að spá í að slá upp teiti annað kvöld en
þessar fréttir eru óstaðfestar
...að Emmi "tripp" sé farinn að huga að líkamanum og fór á
fund við jurtasérfræðing í dag
...að Óttar "gullfingur" sé á fullu að leita sér að bíl en helst
kemur Bora og Golf til greina
...að við fótboltadúddarnir höfum verið sniðgengnir á
miðvikudaginn þegar við ætluðum í bolta en þá var búið að tvíbóka
salinn og hinn hópurinn gekk fyrir
...að "thechamps" séu að gefa eftir í bloggheiminum og séu
arfaslakir að tjá sig núna
...að mótmælendur Íslands séu í skýjunum þar sem nýtt mál (DV)
er sprottið upp og þeir geta haldið áfram að vera "töff" og
mótmælt öllu bara til að mótmæla því
...að þessir mótmælendur eru flestir búnir að gleyma
raunverulega glæpamanninum í málinu, þá sérstaklega
fórnarlömbunum
...að ég er þó ekki að verja DV og er alfarið á móti því að
birtar séu myndir og nöfn manna sem ekki hafa hlotið dóm
...að ég sé þó alfarið með því að birta myndir og nöfn dæmdra
barnaníðinga
...að Stefán Dadda sé ennþá atvinnulaus og meiga drykkjumenn
Reykjavíkur eiga von á að sjá Stebbann niðrí bæ með trefil að týna
dósir
...að þessari færslu sé lokið...

Smá vinnudjamm í sumar. Danni, ég, Þröstur and some
chicks....