FREE PORN!

18.05.2007 15:53:08 / aron84

Eitt sinn töff, alltaf töff...

Hæ, ég veit ekki hvað hefur komið yfir mig en allt í einu ákvað ég að henda inn einni færslu svo að aðdáendahópurinn minn verði ekki sár. Ég á stóran aðdáendahóp sem hafa stutt við bakið á mér í gegnum súrt og sætt og það hefur verið mér mikils virði. Ég vil bara að þið vitið að þið eruð öll í bænum mínum og mér þykir ótrúlega vænt um ykkur.

En margt hefur gerst í mínu ágæta lífi síðustu misseri. T.d. hefur bíllinn minn verið með fokking stæla og ég var við það að skjóta helvítið en hann komst loksins í lag í dag þannig að hann er ennþá töff.

Ég er kominn með nýja vinnu en byrja þá ekki fyrr en 29.maí í þeirri vinnu. Ég er að fara að vinna á www.visir.is í sumar. Ég byrja á að skrifa almennar fréttir og verð afleysingaíþróttafréttamaður, en síðustu 6 vikurnar tek ég alveg við íþróttunum og verð því aðalíþróttafréttamaður vefsins. Ekki slæmt það. Svo ætla ég að ráða Kára ( http://flickr.com/photos/karinn ;)sem ljósmyndara fyrir mig og við ætlum að gera góða hluti saman.

Að lokum er ég loksins búinn að sækja um í Háskóla Íslands en stjórnmálafræðin varð fyrir valinu. Stefnan er að komast langt í stjórnmálum svo að ég geti lokað fyrir straum erlendinga til landsins. Er ekki að fíla útlendinga á Íslandi en auðvitað eru fullt af fínum útlendingum hér að vinna og að reyna að aðlagast...


» 4 hafa sagt sína skoðun