FREE PORN!

29.06.2008 19:11:52 / aron84

Hvar er Aron? Stebbi skrifar..

Já ég vil að fólk velti þessu fyrir sér!

Greyið Aron veit ekki að ég er að skrifa hérna - Ég er prakkari..

Ekki greyið Aron að ropa upp úr sér lykilorðinu á síðunni eitthvert kvöldið!

Fannst þetta bara verða koma fram! Besta færslan á aronssíðu? I think so..

» 4 hafa sagt sína skoðun

17.06.2008 14:50:22 / aron84

7 dagar. Þrössi skrifar...

Í dag er 17. júní. Sem þýðir bara eitt: Það er vika þangað til Aron fer til Tenerife! Aron sefur lítið þessa dagana enda tilhlökkunin mikil. Ég er hjá tengdó núna, ég er svo svangur að ég stalst í tölvuna til að dreifa huganum.

Nokkrar staðreyndir um Aron:
$ Einn dyggasti stuðningsmaður Roberto Baggio sem sögur fara af
$ Er alltaf til í bjór
$ Er góður vinur sem getur gert kraftaverk
$ Er hugsanlega timbraður í dag
$ Er í miklu uppáhaldi hjá gömlu sjóurum í Víkinni
$ Er stúdent frá MK eins og ég
$ Hefur gengið í fimm framhaldsskóla: MÍ, ML, MK, Flensborg, Fjöl. í Garðabæ
$ Er mjúkur inn við bein, rétt eins og ég

Já hann er Aron er engum líkur, nema Ödda Örnólfs.


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.06.2008 12:04:30 / aron84

12 dagar

Sælt veri fólkið, ég ætla nú að byrja á að þakka honum Þresti frænda mínum fyrir skemmtilegt blogg. Ég er bara í vinnunni að telja niður dagana þar til ég fer út. Ég er að vinna á lager. Það sem mér þykir furðulegt er að ég er að heyra það að fólk er að tala um það á kaffihúsum bæjarins hversu góður lagermaður ég er. Sumir vilja jafnvel meina að ég sé besti lagerstarfsmaður landsins en ég veit nú ekki hversu mikið er til í því. Samt er það heiður að nafn mitt skuli vera nefnt þegar talað er um að bestu lagermenn landsins.

Ég var fyrir vestan á fermingarmóti um þarsíðustu helgi, ekki málið. Þar voru margir skemmtilegir krakkar komnir saman og mætingin var þrusugóð. Skemmtilegast þótti mér þó að sjá Emma í víkinni. Hann hafði ég ekki séð lengi. Ég er að spá í að fara í dag og fara í Nova. Eða ganga í Nova eins og ég kýs að kalla það. Ég skora hér með á alla til að ganga í Nova því að þá get ég hringt frítt í ykkur og svo er ekkert vesen að stunda símasex með Nova. Það er fyrir mestu.

Berglind er kvonfang eitt. Hún er mín frú og þess má geta hér að hún heldur upp á útskriftina sína um helgina út í sveit. Hún er nefnilega að fara að útskrifast úr viðskiptafræði á laugardaginn. Búist er við miklum fjölda fólks og mun ég halda uppi stuðinu með dólgslátum. Ég verð þó með smá sideshow því að megabandið HáEmm mun sjá um að skaffa tónlist fyrir liðið. Orðrómur er á kreiki um að Bogga frænka verði líka með en þetta verður allt að koma í ljós með tímanum.

Image and video hosting by TinyPic

Ég og Dabbi Þorkels sáum um fjörið á fermingamótinu. Ég býst ekki við að sjá Dabba á laugardaginn en hver veit?

» 2 hafa sagt sína skoðun

10.06.2008 11:14:56 / aron84

14 dagar. Þröstur Frændi skrifar..

Hann Aron frændi kann þetta. Lofar færslu á hverjum degi og heldur öllum á tánum, en svo gerist ekki neitt. Ég held að það séu 14 dagar þangað til Roni fari út til Tenerife, og akkúrat 3 mánuðir þangað til ég fer, þvílík tilviljun!

Nokkrar staðreyndir um Aron:
$ Finnst bjórinn góður
$ Heldur með Aston Villa
$ Er ávallt með dollaramerki í augunum
$ Hefur mikið álit á mér
$ Hélt einu sinni með Manchester United eins fáránlega og það hljómar
$ Fílar Elton John
$ Eitt uppáhaldslagið hans er Stars með Simple Red

Þröstur Frændi? Kveður...með söknuði.


» 8 hafa sagt sína skoðun

06.06.2008 12:47:17 / aron84

Átján dagar

Ég er mættur til að dissa pabba þinn... Já, ég var að lesa John-McClane bloggið og þegar ég sé hvað hann Þröstur sonur minn er duglegur ákvað ég að henda í eitt blogg. Núna hugsa eflaust margir hvað þessi fyrirsögn merkir en ég skal segja ykkur það, núna eru átján dagar þar til ég fer til Tenerife. Mitt takmark er að skrifa eina færslu á dag þangað til og missíjónið er að gera alltaf skemmtilegri og flottari færslu en daginn áður... Það verður erfitt en ég er svo magnaður að ég hlýt að geta gert það.

Til að gera þetta ekki of erfitt verður þessu færsla bara stutt og ekkert skemmtileg en kíkið við á morgun, þá verður nú eitthvað sniðugt fyrir ykkur að lesa...

» 1 hafa sagt sína skoðun