FREE PORN!

13.2.2008 05:14:37 / aron84

Funny stöff

  prakkara strik  
Í hádeginu: leggðu bílnum og sittu í honum með sólgleraugu. Miðaðu með hárþurrku á bílana sem keyra framhjá. Athugaðu hvort þeir hægi á sér.

2. Kallaðu sjálfa þig upp í innanhúss kallkerfinu. EKKI reyna að breyta rödd þinni.

3. Stattu föst/fastur á því að netfangið þitt sé: Xena-Warrior-Princess@OCDSB.edu.on.ca eða Elvis-the-King@OCDSB.edu.on.ca

4. Hvert skipti sem einhver biður þig að gera eitthvað fyrir sig, spyrðu "má bjóða þér franskar með þessu?"


5. Stilltu ruslafötunni upp á skrifborðið með miða á sem segir "Innbox"


6. Þróaðu með þér óeðlilega hræðslu við prjónadót


7. Fylltu kaffivélina með koffínfríu kaffi í þrjár vikur. Þegar allir eru búnir að losna við koffínfíknina, fyllirðu á með espresso.


8. Á allar kvittanir skrifar þú; Fyrir kynlífsþjónustu.

9. Ljúktu öllum setningum þínum með; Samkvæmt spádómum.


10. Ekki nota punkta.

11. Eins oft og mögulega hægt; hoppa í stað þess að ganga


12. Spurðu fólk hvers kyns það sé. Hlæðu brjálæðislega þegar það hefur svarað.

13. Taktu sérstaklega fram í bílalúgusjoppunni að pöntun þín sé "taka með".


14. Syngdu með í óperunni


15. Farðu á ljóðakvöld og spurðu afhverju ljóðin vanti allan ryþma.

16. Hengdu flugnanet í kringum skrifborð þitt. Spilaðu frumskógarhljóð af diski alla daga.


17. Tilkynntu vinum þínum fimm dögum fyrir partýið að þú komir ekki því þú sért ekki alveg upplögð.


18. Biddu vinnufélaga þína að ávarpa þig með Gladiator-nafni þínu, Rock Hard.

19. Þegar peningarnir koma út úr hraðbankanum hrópar þú "Ég vann! Ég vann!!! Þriðja skiptið í þessari viku!!!!"

 

1.Stilltu litinn á sjónvarpinu þínu þannig að allt verði græntog haltu því staðfastlega fram þér líði illa þegar að þetta sé ekki svona

2.Trommaðu stanslaust á borðplötur og aðra tilfallandi fleti.

3.Syngdu án afsláts stefið úr Nýjasta tækni og vísindi og gerðu róbotahreyfingar með.

4.Heftaðu blöð saman á miðri síðunni.

5.Feldu mjólkurvörur á óalgengum stað.

6.Skrifaðu óvænt sögulok á fyrstu síðu skáldsagna, sérstaklega glæpasagna.

7.Lærðu Morse-kerfið utan að og ræddu við félagana alfarið með sniðinu ,,Bíp,bíbbbíbb,bíp...´´.

8.Kauptu mikið magn af tannþræði í þeim tilgangi einu að sleikja bragðið af. Gerðu það á fjölmennum stað, t.d. á kaffihúsi í kringlunni eða öðrum álíka.

9. Gleymdu Nine Inch Nails snældunni þinni í hljómflutningstækjum aldraðra ættingja á viðeigandi stillingu.

10.Flautaðu bílflautunni og veifaðu til ókunns fólks.

11.Skiptu alltaf um sjónvarpsstöð þegar örfáar mínútur eru eftir af þáttum.

12.Segðu óáhugaverðar reynslusögur og afsakaðu þig með setningunni : ,,Þú hefðir átt að vera á staðnum.´´

13.Vektu sambýlisfólk þitt á hverjum morgni með tónlist Offspring.

14.VÉLRITAÐU EINGÖNGU Í HÁSTÖFUM.

15.vélritaðu eingöngu í lágstöfum.

16.ogekkinotagreinarmerki

17.Kauptu mikið magn af appelsínugulum umferðarkeilum og endurskipulagðu heilu hverfin eftir eigin höfði. Ef einhver mótmælir spurðu þá hvort að hinn sami trufli einhvern tímann aðra listamenn að störfum.

18.Hnýttu jólaskraut í allar flíkur sem þú átt. FAGURT SKRAUT GLEÐUR Hvers vegna ættirðu ekki að lífga upp á fötin þín með fallegu jólaskrauti.

19.Endurtaktu allt sem aðrir segja í formi spurningar.

20.Segðu öllum sem þú hittir frá einkasamsæringskenningum þínum um Guðmundar og Geirfinnsmálið, Kennedy-morðið og fljúgandi furðuhluti. Láttu þær allar innihalda Babar og raunvísindadeild Háskólans.

21.Stattu fyrir eftirfarandi samtali 10-15 sinnum í röð:,,Heyrðirðu þetta?´´,, Hvað?´´,,Æ það er farið núna.´´

22.Brenndu neyðarblys á afmæliskökum í barnaafmælum.

23.Ráfaðu milli borða á veitingahúsi og biddu matargesti um að lána þér steinselju.

24.Húktu yfir öxlum fólks og umlaðu þegar það er að lesa.

25.Ljúktu við: 100 grænar flöskur, lagið.

26.Settu stefnuljósið á við Ártúnshöfða og aktu alla Miklubraut og Hringbraut á enda á þess að slökkva það.

27.Láttu sem tölvumúsiin sé sími og talaðu í hana í gríð og erg.

28.Reyndu að leika forleikinn af Vilhjálmmi Tell með því að banka í hökuna á þér, hættu rétt áður en hann er búinn og segðu: "Nei, bíddu þetta var ekki alveg rétt," og byrjaðu upp á nýtt.

29.Nefndu hundinn þinn Hund.

30.Segðu fólki að það sé bara til í ímyndun þinni.

31.Spurðu fólk hvors kyns það sé.

32.Svaraðu fólki með setningunni: Svo þú heldur það.

33.Sleiktu kremið af kexinu og skilaðu afgangnum í pakkann.

34.Gerðu þér upp vestfirskan framburð.

35.Segðu í stað þess að ljúka bröndurum : Ég man nú ekki alveg hvað gerðist svo en það var allavega rosalega fyndið.

36.Handjárnaðu þig við húsgögn og segðu við þá sem spyrja að þú viljir ekki detta ef Suðurlandsskjálftinn ríður yfir. HAFÐU ÞAU MJÚK. Fátt getur bjargað þér í stóra skjálfta ef þú handjárnar þig ekki við húsgögnin.

37.Veldu ákveðna manneskju, eltu hana um allt og úðaðu hreingerningalegi á allt sem hún snertir.

38.Raulaðu leiðinleg lög sem þú veist að fólk fær á heilann.

39.Breyttu nafninu þínu í Aaaaaajón Jónsson til að geta notið þeirrar dýrðar að vera fyrstur í símaskránni . Haltu því fram að nafnið sé grænlenskt og heimtaðu að fólk beri hvert A sérstaklega fram, skýrt og greinilega

40.Skáldaðu upp tækniorð í sambandi við tölvur og atugaðu hvort fólk taki upp eftir þér, til að leyna þekkingarleysinu.

41.Notaðu mjög mikið ilmvatn.

42.Taktu frá heila röð á besta stað í bíósalnum og segðu að þetta sé fyrir vini þína sem séu alveg að koma, þó að þú eigir ekki von á neinum.

43.Sláðu blettinn með skærum.

44.Biddu þjóninn um aukasæti fyrir ímyndaðan vin þinn.

45.Farðu á ljóðalestur og spurðu eftir hvert ljóð hvers vegna það hafi ekki verið rímað.

46.Horfðu langtímum saman á snjóbylinn í sjónvarpinu og haltu því fram að þú sjáir falda mynd.

47.Slepptu því að gera eðlilegar tónhæðabreytingar í lok setninga þannig að viðmælendur þínir haldi að þú sért að fara að segja eitthvað og njóttu vandræðalegu þagnarinnar.

48.Horfðu aldrei í augum á viðmælendum þínum.

49.Horfðu stöðugt í augun á viðmælendum þínum.

50.Gefðu til kynna að samtali sé lokið með því að grípa fyrir eyrun.

51.Kallaðu fram tölur af handahófi ef fólk er að reyna að telja.